Þess vegna er ég félagi

 

Helga Eysteinsdóttir

Helga Eysteinsdóttir

Ein af stofnfélögum Zontaklúbbsins Emblu

Fyrrverandi gjaldkeri

B.A. próf í Íslensku 2016

FAKTA 

Quis autem vel eum iure reprehe nderit qui in ea voluptate velit esse quam nihil mole stiae consequatur, vel illum qui dolorem eum fugiat quo voluptas nulla pariatur. Nemo enim ipsam voluptatem quia voluptas sit aspernatur aut odit aut fugit, sed quia consequuntur magni dolores eos qui ratione voluptatem sequi nesciunt. Neque porro quisquam est, qui dolorem ipsum quia dolor sit amet, consectetur, adipisci velit, sed quia non numquam eius modi tempora incidunt ut labore et dolore magnam aliquam quaerat voluptatem.

Zontastarfið er ákaflega gefandi. Það hefur víkkað sjóndeildarhring minn á svo margan hátt.  Ég hef kynnst mörgum frábærum konum úr ýmsum starfsstéttum sem á óeigingjarnan hátt hafa stuðlað að bættum hag kvenna bæði hér á landi og á alþjóðagrundvelli.

Ég hef verið í Zontaklúbbnum Emblu frá árinu 1988 og hef því haft tækifæri til að taka þátt í hvetjandi og árangursríku samstarfi til þess að hjálpa konum.  Vináttan og samveran með hinum mörgu Zontum hafa auðgað líf mitt og það eru einnig forréttindi að fá að taka þátt í slíku mannúðarstarfi. Klúbbstarfið hefur verið ákaflega fjölbreytt, fræðandi og skemmtilegt.

Á fundunum hafa verið haldnir fyrirlestrar, fræðsla hefur verið um Zontamálefni, vinnustaðir heimsóttir, sameiginlegir fundir með öðrum Zontaklúbbum hafa verið haldnir og farnar hafa verið skemmtiferðir, oft með vinum og vandamönnum.  Lands- og svæðisfundir eru sérstaklega skemmtilegir og áhugaverðir. Þar kynnumst við konum frá öðrum landshlutum og löndum, störfum þeirra og siðum og vináttubönd eru oft mynduð.

Helga Eysteinsdóttir

 

 

Copyright © 2023, Zonta International - District 13.